Gífurlegur fögnuður hefur ríkt í Leicester-borg í kvöld í kjölfarið á sigri Leicester City í ensku úrvalsdeildinni sem varð að veruleika í kvöld þegar Chelsea og Tottenham gerðu jafntefli.
Leikmennirnir fögnuðu heima hjá Jamie Vardy og efsta myndin er þaðan en hér fyrir neðan má sjá stemninguna í miðborg Leicester.