Franska liðið Bordeaux vill fá bakvörðinn Mathieu Debuchy til liðs við sig frá enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal. Sky greinir frá því að Bordeaux séu reiðubúnir að hefja viðræður um kaup á leikmanninum.
Debuchy er þrítugur Frakki sem hefur ekki átt sjö dagana sæla í herbúðum Arsenal. Hann var keyptur til félagsins frá Newcastle árið 2014 eftir gott tímabil en meiddist snemma á næsta tímabili.
Það varð til þess að hinn bráðefnilegi Hector Bellerin greip tækifærið og hefur verið fastamaður síðan. Debuchy hefur aðeins spilað 12 leiki með félaginu og var á láni hjá Bordeaux frá síðustu áramótum að sumri.