Stuðningsmenn Manchester United og granna þeirra í City verða að bíða lengur eftir fyrstu viðureign liðanna undir stjórn knattspyrnustjóranna José Mourinho og Pep Guardiola.
Liðin áttu að mætast í leik á æfingamóti í Kína í dag en leiknum hefur verið frestað vegna slæmra vallarskilyrða. Áður hafði José Mourinho, knattspyrnustjóri United, kvartað yfir ástandi vallarins í Peking.
„Að mínu mati eru íbúar Peking óheppnir því völlurinn er mjög slæmur. Ástand leikmanna minna er mun mikilvægara en úrslit í æfingaleikjum,“ sagði Mourinho á blaðamannafundi í gær.
Ferðin hafði ekki gengið áfallalaust fyrir sig hjá United en flugvélin sem ferjaði hluta leikmanna og forráðamanna liðsins til Peking þurfti að nauðlenda vegna veðurs um helgina.
Due to recent weather events, tournament organisers & participating clubs have decided to cancel tonight's International Champions Cup game.
— Manchester United (@ManUtd) July 25, 2016