Per Mertesacker mun líklega ekki koma við sögu í leikjum enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal á þessu ári að sögn íþróttablaðamannsins Kaveh Solhekol hjá Sky Sports. Upphaflega var gert ráð fyrir að það tæki þýska miðvörðinn nokkra mánuði að jafna sig á meiðslunum.
Mertesacker hefur verið byrjunarliðsmaður í hjarta varnarinnar ásamt Laurent Koscielny og var gerður að fyrirliða fyrir komandi tímabil.
Arsenal hefur nýlega keypt unga miðvörðinn Rob Holding en knattspyrnustjóri Arsenal, Arsene Wenger, hefur gefið í skyn að félagið muni bæta við fleiri varnarmönnum, sérstaklega í ljósi meiðslanna hjá Mertesacker.