Marcelo Brozovic, leikmaður Inter á Ítalíu, er á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea en erlendir miðlar greina frá þessu í kvöld.
Brozovic, sem er 23 ára gamall miðjumaður, hefur verið i lykilhlutverki hjá Inter síðasta árið en hann lék 32 leiki fyrir félagið á síðasta tímabili.
Inter hefur samþykkt 25 milljóna evra tilboð frá Chelsea og nú á félagið aðeins eftir að semja við leikmanninn.
Glugginn lokar á miðvikudag og vill Antonio Conte, stjóri Chelsea, landa að minnsta kosti einum leikmanni áður en hann lokar.