Arsenal hefur unnið hörðum höndum að því að styrkja leikmannahópinn áður en félagaskiptaglugganum er lokað á morgun.
Í kvöld bárust þær fréttir úr herbúðum félagsins að það hefði samið við þýska landsliðsmanninn Shkodran Mustafi.
Hann er 24 ára gamall varnarmaður sem kemur frá spænska liðinu Valencia. Hann á að baki 12 leiki með þýska landsliðinu.