Wayne Rooney verður aftur á bekknum um helgina hjá Manchester United og mun byrja leikinn á morgun gegn Zorya Luhansk í Evrópudeildinni. Þetta fullyrðir fréttavefur Sky Sports og hefur eftir heimildamönnum sínum.
Rooney var settur á bekkinn fyrir síðasta leik United sem vann Englandsmeistara Leicester auðveldlega, 4:1.
Rooney kom inn á þegar skammt af eftir af leiknum en það var einungis í þriðja skiptið á fjórum leiktíðum sem Rooney byrjar á bekknum í ensku úrvalsdeildinni.
Fyrir leikinn sagði Mourinho að svo virtist vera sem Rooney hefði látið alla þá gagnrýni sem hann hefur þurft að þola fyrir spilamennsku sína hafa áhrif á sig á þessari leiktíð.