Georginio Wijnaldum leikmaður Liverpool, segir í samtali við Skysports að það hafi einungis þurfti einn fund með Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra félagsins, til þess að sannfæra hann um að ganga til liðs við félagið í sumar.
Wijnaldum gekk til liðs við Liverpool frá Newcastle United á 25 milljónir punda eftir að síðarnefnda félagið féll úr ensku úrvalsdeildinnni í knattsprnu karla síðasta vor.
„Ég fundaði einu sinni með Klopp og hann náði strax að sannfæra mig um að spila fyrir Liverpool. Ég fékk það strax á tilfinninguna að hann hefði trú á mér og ég gæti bætt mig undir hans stjórn. Mér fannst Klopp rétti aðilinn til þess að þróa mig í rétta átt,“ sagði Wijnaldum um vistaskiptin.