Breskur þingmaður telur að þarlend yfirvöld ættu að rannsaka skattamál knattspyrnustjórans José Mourinho. Hann er sakaður um að hafa notað aflandsfélög til að komast hjá því að borga skatta.
Mourinho er sakaður um að hafa fært milljónir punda á reikninga á Bresku-Jómfrúareyjunum til að forðast skattinn.
Umboðsmaður Mourinho, Jorge Mendes, segir slíkar ásakanir úr lausu lofti gripnar.
Eins og áður hefur komið fram hafa blaðamenn um allan heim rannsakað vafasamar millifærslur á peningum í evrópska fótboltanum. Þar kemur fram að Mourinho er talinn hafa falið 12 milljónir evra á svissneskum reikningi sem var í eigu fyrirtækis á Bresku-Jómfrúareyjunum.
Einnig kemur þar fram að Portúgalinn Cristiano Ronaldo hefði getað falið 150 milljónir evra í skattaskjólum í Sviss og á Bresku-Jómfrúareyjunum. Kappinn er sagður hafa notið góðs af einhvers konar kerfi sem umboðsmaður hans, Jorge Mendes, bjó til.
Frétt mbl.is: Afhjúpa vafasöm viðskipti í boltanum
Samkvæmt áðurnefndum skjölum á Mourinho að hafa svikið undan skatti þegar hann var knattspyrnustjóri Chelsea á árunum 2004 - 2007 og síðan þegar hann var knattspyrnustjóri Real Madrid 2010 - 2013.
„Ég tel að það sé mikilvægt að yfirvöld fari vel yfir þessi mál,“ sagði breskur þingmaður í samtali við BBC og bætti við að slíkar ásakanir væru erfiðar fyrir stuðningsmenn liða sem eyða aleigunni í að kaupa miða á leiki.