Fyrirliði enska D-deildarfélagsins Leyton Orient, Liam Kelly, hefur verið dæmdur í sex leikja bann eftir áflog við boltasæki í 3:2 sigrinum á Plymouth á þriðjudag.
Kelly var á gulu spjaldi er atvikið átti sér stað en dómari leiksins sá það ekki og kláraði leikmaðurinn því leikinn.
Enska knattspyrnusambandið kærði fyrirliðann eftir atvikið og dæmdi hann að lokum í sex leikja bann.