Aron Einar og félagar sigursælastir

Aron Einar Gunarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu.
Aron Einar Gunarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. AFP

Það hefur sannarlega gengið vel hjá landsliðsfyrirliðanum Aroni Einar Gunnarssyni og félögum hans hjá Cardiff í ensku B-deildinni í knattspyrnu.

Raunar hefur ekkert lið innbyrt fleiri stig en Cardiff í deildinni á árinu, 21 talsins. Í þessum leikjum hefur Aron Einar verið í byrjunarliði í hvert einasta skipti. Það er tölfræðiveitan Opta Joe sem birtir þennan mola í dag.

Cardiff hefur 45 stig í 12. sæti og hefur hægt og rólega mjakað sér upp töfluna eftir erfiða byrjun. Cardiff leikur gegn Ragnari Sigurðssyni og félögum í Fulham á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert