Chelsea náði í kvöld sjö stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 4:2 sigur gegn Southampton á Stamford Bridge.
Diego Costa skoraði tvö mörk fyrir Chelsea og þeir Eden Hazard Gary Cahill skoruðu sitt markið hvor en mörk Southampton skoruðu tveir fyrrverandi leikmenn Chelsea, Oriol Romeu og Ryan Metrand, sem minnkaði muninn í uppbótartíma.
Chelsea hefur 78 stig í toppsæti deildarinnar en Tottenham hefur 71 og sækir Crystal Palace heim annað kvöld. Southampton er sem fyrr í 9. sætinu með 40 stig.
Fylgst var með leiknum í beinni textalýsingu.
Chelsea | 4:2 | Southampton | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Willian (Chelsea) kemur inn á | ||||
Augnablik — sæki gögn... |