Burnley sigraði Crystal Palace 2:0 á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Var þetta fyrsti útisigur Burnley í deildinni í vetur og liðið nú með 39 stig í 14. sæti. Palace er hins vegar með 38 stig í 16. sæti.
Ashley Barnes kom gestunum yfir á 7. mínútu leiksins og var það eina mark fyrri hálfleiks. Varamaðurinn Andre Gray gulltryggði sigur gestanna með marki sex mínútum fyrir leikslok.
Jóhann Berg Guðmundsson sat allan tímann á varamannabekk Burnley í dag.
Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu.
Cr. Palace | 0:2 | Burnley | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Loïc Rémy (Cr. Palace) á skot sem er varið | ||||
Augnablik — sæki gögn... |