Antoine Griezmann, framherji Atlético Madrid, tjáði sig um þá orðróma sem verða sífellt háværari þess efnis að hann sé á leið frá félaginu til Manchester United í sumar.
Griezmann sagði í Twitter-færslu í gærkvöldi að hann hafi ekki farið fram á sölu frá Atético Madrid, en hann muni ákveða framtíð sína eftir að hafa ráðfært sig við ráðgjafa sína á næstu dögum.
„Fréttir sem segja að ég hafi ákveðið að yfirgefa Atlético Madrid eru ekki á rökum reistar. Ég er enn leikmaður Atlético Madrid. Ákörðun um framtíðina verður tekin eftir fund með ráðgjöfum mínum,“ sagði Griezmann í færslu sinni.
Toutes les rumeurs sont infondées, je suis toujours Colchonero. Mon orientation sera etablie apres discussion avec mon Conseiller Sportif
— Antoine Griezmann (@AntoGriezmann) May 26, 2017