Argentínski sóknarmaðurinn Sergio Agüero verður áfram í herbúðum Manchester City að sögn Khaldoon Al Mubarak stjórnarformanns Manchester-liðsins.
Nokkur óvissa hefur ríkt um framtíð Argentínumannsins hjá Manchester City og sérstaklega eftir kaup félagsins á brasilíska sóknarmanninum Gabriel Jesus en Agüero mátti sætta sig við að verma varamannabekkinn í nokkrum leikjum þar sem Pep Guardiola var með Jesus ofar í goggunarröðinni.
Agüero er samningsbundinn Manchester City til ársins 2020 en hann kom til liðsins frá Atlético Madrid árið 2011 og hefur skorað 122 mörk í 188 deildarleikjum með liðinu.