Franski framherjinn Bafetimbi Gomis er genginn í raðir tyrkneska liðsins Galatasaray frá velska liðinu Swansea City.
Gomis, sem er 31 árs gamall og á 12 leiki að baki með franska landsliðinu, var í láni hjá franska liðinu Marseille á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 20 mörk í 32 leikjum en hann skoraði 13 mörk í 64 deildarleikjum með Swansea.