Álvaro Morata verður að öllum líkindum tilkynntur sem leikmaður Chelsea á allra næstu dögum, en flestir héldu að hann myndi ganga í raðir Manchester United. United ákvað hins vegar að kaupa Romelu Lukaku frekar.
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, var spurður út í kaup Chelsea á Morata og hafði hann ekki mikið að segja um sitt gamla félag.
„Mér er alveg sama hvað Chelsea gerir. Við þurftum framherja og við nældum í stóran leikmann sem er með þeim betri í Evrópu. Við erum mjög ánægðir með að hafa fengið Lukaku. Það var augljóst að Chelsea ætlaði að ná í framherja, sérstaklega í ljósi þess að Diego Costa er að fara. Morata er góður leikmaður,“ sagði Mourinho við fréttamenn.