Swansea leitar nú logandi ljósi að arftaka Gylfa Þórs Sigurðssonar og hefur fyrsta tilraun í þeim efnum ekki borið árangur.
Swansea er talið hafa boðið 12 milljónir punda í Sam Clucas, leikmann Hull í ensku B-deildinni, en því hefur verið hafnað.
Clucas hefur verið eftirsóttur í sumar, en forráðamenn Jóhanns Bergs Guðmundssonar buðu 10 milljónir í hann fyrr í sumar. Hull er talið vilja fá 20 milljónir fyrir kappann