Sadio Mané skoraði sigurmark Liverpool í 1:0-heimasigri á Crystal Palace í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Markið kom á 73. mínútu er hann fékk boltann óvænt innan teigs og hann kláraði vel.
Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn og ekki mikið um alvöru færi. Meira fjör færðist í leikinn í síðari hálfleik og hefði Liverpool getað skorað mun fleiri mörk ef ekki hefði verið fyrir stórglæsilegan leik Wayne Hennessey í marki Palace.
Mark Mané dugði hins vegar til og er Liverpool með fjögur stig eftir fyrstu tvö leikina en Palace er enn án stiga.
Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.
Liverpool | 1:0 | Cr. Palace | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Roberto Firmino (Liverpool) fer af velli | ||||
Augnablik — sæki gögn... |