Knattspyrnumaðurinn Davinson Sanchez fer í læknisskoðun hjá Tottenham í dag. Varnarmaðurinn er á leið til félagsins eftir að Spurs gerði samning við Ajax í lok síðustu viku sem hljóðar upp á 42 milljónir punda. Hann verður fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Tottenham í sumar og jafnframt dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.
Sanchez verður líklega orðinn leikmaður Tottenham í lok dags, en Ajax selur leikmanninn á 38,2 milljónum punda meira heldur en félagið greiddi fyrir hann fyrir ári, 3,8 milljónir punda.