Sam Clucas er genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Swansea City frá Hull City. Kaupverðið er talið vera um 15 milljónir punda ásamt því að Stephen Kingsley fer í hina áttina.
Clucas er fyrsti leikmaðurinn sem Swansea kaupir eftir að hafa selt Gylfa Þór Sigurðsson til Everton á 45 milljónir punda fyrr í mánuðinum.
Clucas er 26 ára Englendingur sem spilar sem miðjumaður. Hann lék 84 deildarleiki á tveimur árum hjá Hull og skoraði í þeim níu mörk.