Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool, er óðum að skrá sig á spjöld sögunnar hjá félaginu og náði einum stórum áfanga um helgina.
Coutinho skoraði eitt mark og lagði upp annað í 3:0-sigri Liverpool gegn Southampton um helgina og hefur nú alls gefið 31 stoðsendingu í ensku úrvalsdeildinni fyrir liðið. Hann er nú búinn að taka fram úr bæði Robbie Fowler og Michael Owen, goðsögnum hjá liðinu, sem lögðu upp 30 mörk.
Coutinho á þá nokkuð í land með að verða sá stoðsendingahæsti hjá félaginu, en Steve McManaman lagði upp 58 mörk í deildinni og Steven Gerrard 92.