Hazard jafnaði Eið Smára

Eden Hazard skorar úr vítaspyrnu í kvöld.
Eden Hazard skorar úr vítaspyrnu í kvöld. AFP

Belginn Eden Hazard jafnaði Eið Smára Guðjohnsen í fjölda marka fyrir Chelsea þegar hann skoraði fyrsta mark liðsins í 4:0 sigri þess gegn Qarabag í Meistaradeildinni Evrópu í knattspyrnu í kvöld.

Markið sem Hazard skoraði úr vítaspyrnu var hans 78. fyrir Lundúnaliðið en Eiður Smári skoraði 78 mörk á ferli sínum með Chelsea.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert