Spænski bakvörðurinn Alberto Moreno leikur líklega ekki með Liverpool næstu sex vikurnar, að því er Jürgen Klopp knattspyrnustjóri segir á vef félagsins í dag.
Moreno fór meiddur af velli í 7:0 sigri Liverpool á Spartak Moskva í Meistaradeildinni í síðustu viku. Hann meiddist á ökkla og Klopp segir óvissu um hve lengi hann verði að jafna sig. Það geti tekið sex vikur en mögulega skemmri tíma. „Við verðum að bíða og sjá,“ sagði Klopp.
Miðvörðurinn Joel Matip er áfram frá keppni og verður örugglega ekki leikfær annað kvöld þegar Liverpool mætir WBA í úrvalsdeildinni.