Gylfi byrjar gegn Newcastle

Gylfi Þór Sigurðsson er á sínum stað í byrjunarliði Everton.
Gylfi Þór Sigurðsson er á sínum stað í byrjunarliði Everton. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton sem mætir Newcastle á útivelli í 17. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Gylfi byrjar á vinstri kantinum. 

Everton er í 10. sæti deildarinnar með 19 stig og Newcastle er í 16. sæti með 15 stig. Everton hefur unnið tvo af síðustu þremur deildarleikjum sínum og ekki tapað síðan 26. nóvember. Newcastle hefur hins vegar tapað sex af síðustu sjö leikjum sínum og ekki unnið síðan 21. október. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert