Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, er ekki búinn að gefast upp á að fá Alexis Sánchez, leikmann Arsenal, til félagsins í janúar. City reyndi að fá Sánchez í sumar en það gekk ekki upp.
„Góð spurning. Ég veit ekki hvað við gerum í janúar. Hver veit?“ sagði Guardiola er hann var spurður út í möguleikann á að fá Sánchez eftir áramót.
Sánchez og Guardiola unnu saman hjá Barcelona, en Sílebúinn er samningslaus eftir leiktíðina og getur hann því farið frá Arsenal án greiðslu næsta sumar.