Sigurganga Manchester City hélt áfram þegar liðið mætti Tottenham Hotspur í 18. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla á Etihad Stadium í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 4:1 Manchester City í vil.
Manchester City heldur þar af leiðandi áfram að bæta met sitt yfir flesta sigurleiki í röð í efstu deild á Englandi, en liðið hefur nú borið sigurorð í 16 deildarleikjum í röð. Alls hefur Manchester City haft betur í 17 deildarleikjum á yfirstandandi leiktíð og gert jafntefli í einum leik.
Ilkay Gundogan opnaði markareikning sinn á leiktíðinni með skallamarki sínu þegar tæplega stundarfjórðungur var liðinn af leiknum. Kevin De Bruyne sem var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður vallarins í leiknum tvöfaldaði svo forystu Manchester City um miðbik seinni hálfleiks.
Raheem Sterling bætti síðan tveimur mörkum við fyrir Manchester City áður en Chrisitan Eriksen klóraði í bakkann fyrir Tottenham Hotspur. Niðurstaðan öruggur og afar sanngjarn sigur Manchester City sem náði 14 stiga forskoti á toppi deildarinnar með þessum sigri.
Manchester City trónir á toppi deildarinnar með 52 stig, en Manchester United sem mætir WBA á morgun er í öðru sæti deildarinnar með 38 stig.
Tottenham Hotspur er hins vegar í sjöunda sæti deildarinnar með 31 stig. Tottenham Hotspur hefur jafn mörg stig og Liverpool sem mætir Bournemouth á morgun.