Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton þegar hans gömlu félagar í Swansea koma í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en viðureign liðanna hefst klukkan 20.
Gylfi hefur skorað tvö mörk í 16 leikjum með Everton í deildinni á tímabilinu, en hann var keyptur á 45 milljónir punda frá Swansea í sumar. Everton hefur verið á góðu skriði en liðið hefur innbyrt 10 stig í síðustu fjórum leikjum sínum og er komið upp í 10. sæti deildarinnar eftir afar erfiða byrjun.
Fylgst er með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.