Manchester United vann afar mikilvægan sigur á Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley í fjörugum leik á Turf Moor í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þar sem lokatölur urðu 1:0. Jóhann Berg átti góðan leik og átti meðal annars aukaspyrnu í þverslána. Fimm aðrir leikir fóru fram á sama tíma.
Frakkinn Anthony Martial kom United-liðinu yfir á 54. mínútu með glæsilegri afgreiðslu er hann smellti boltanum í slá og inn eftir sendingu og undirbúning frá Romelu Lukaku. Martial hefur nú skorað í þremur leikjum í röð fyrir United.
Jóhann Berg átti fínan leik fyrir Burnley og átti meðal annars skot í þverslána úr aukaspyrnu á 57. mínútu. Hann var auk þess allt í öllu í föstum leikatriðum Burnley og einn af mest ógnandi leikmönnum liðsins í dag. Sótt var á báða bóga í síðari hálfleik en ekkert mark skorað. United hélt forskoti sínu og sigldi gríðarlega mikilvægum sigri í höfn. United hefur 53 stig í 2. sæti og er níu stigum á eftir Manchester City sem á leik til góða og mætir Newcastle á eftir. Burnley hefur nú leikið átta leiki í röð í öllum keppnum án þess að vinna.
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn í 1:1 jafntefli Everton við WBA á Goodison Park. Jay Rodriguez kom gestunum úr WBA yfir á 7. mínútu og Everton jafnaði ekki metin fyrr en á 70. mínútu. Theo Walcott lék sinn fyrsta leik fyrir Everton í dag en það var varamaðurinn Oumar Niasse sem skoraði mark Everton. Everton hefur 28 stig í 9. sæti.
Það var enginn Alexis Sánchez í leikmannahópi Arsenal gegn Roy Hodgson og hans mönnum í Crystal Palace í dag. Arsenal-menn létu það þó ekki á sig fá, þvert á móti, enda var staðan orðin 3:0 eftir aðeins þrettán mínútna leik og Alexandre Lacazette kom liðinu í 4:0 á 22. mínútu. Nacho Monreal kom liðinu yfir á 6. mínútu, Alex Iwobi bætti öðru við á 10. og þremur mínútum síðar skoraði Laurent Koscielny. Palace hefur verið á góðu skriði frá því að Hodgson tók við liðinu á botni deildarinnar og hafði aðeins tapað einu sinni í síðustu 12 leikjum - en sá leikur var einmitt gegn Arsenal.
Góð frumraun hjá Lambert
Paul Lambert stýrði Stoke í sínum fyrsta leik og tókst það ansi vel en lið hans vann Huddersfield 2:0. Mörkin skoruðu Joe Allen á 53. mínútu og Mame Biram Diouf á 69. mínútu. Fyrir leikinn í dag hafði Stoke tapað fjórum leikjum í röð.
Leicester vann 2:0 sigur á Watford þar sem tvíeykið Jamie Vardy og Riyad Mahrez skoruðu mörkin. Annar sigur Leicester í síðustu sex úrvalsdeildarleikjum. Þá skildu West Ham og Bournemouth jöfn, 1:1. Ryan Fraser og Javier Hernandez skoruðu mörkin með tveggja mínútna millibili í seinni hálfleik, á 71. og 73. mínútu.
Úrslit:
4:1 Arsenal - C. Palace (Monreal 6., Iwobi 10., Koscielni 13., Lacazette 20.; Luka Milivojevic 77.)
1:1 Everton - WBA (Niasse 69.; Rodriguez, 7.)
2:0 Leicester - Watford (Vardy 39. (víti), Mahrez, 90.)
2:0 Stoke - Huddersfield (Allen 53., M. B. Diouf 68.)
1:1 West Ham - Bournemouth (Hernandez 73.; Fraser 72.)