Manchester United leikur til úrslita um enska bikarinn í fótbolta eftir 2:1-sigur á Tottenham í undanúrslitum í dag. Ander Herrera skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik.
Tottenham byrjaði betur og skoraði Dele Alli fyrsta mark leiksins á 11. mínútu er hann kláraði af stuttu færi eftir sendingu Christian Eriksen. 13 mínútum síðar jafnaði Alexis Sánchez eftir fyrirgjöf Paul Pogba og var staðan í hálfleik 1:1.
United var sterkari aðilinn í síðari hálfleik og skoraði Ander Herrera annað markið á 62. mínútu. Tottenham reyndi að ná inn jöfnunarmarkinu, en David De Gea hafði það nokkuð náðugt í markinu og 2:1-sigur varð staðreynd.
Manchester United mætir annað hvort Chelsea eða Southampton í úrslitum.
Tottenham | 1:2 | Man. Utd | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Ander Herrera (Man. Utd) fær gult spjald | ||||
Augnablik — sæki gögn... |