Pochettino með nýjan langtímasamning

Mauricio Pochettino
Mauricio Pochettino AFP

Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, skrifaði í dag undir nýjan fimm ára samning við félagið.

Tottenham hefur endað á meðal þriggja efstu liða ensku deildarinnar síðustu þrjú ár og hefur Pochettino stýrt liðinu til sigurs í 121 leik af 218 síðan hann tók við í maí 2014.

Pochettino var með þrjú ár eftir af samningi sínum, en forráðamenn félagsins ákváðu að bæta við tveimur árum.

„Það er heiður að skrifa undir nýjan langtímasamning við félagið þegar við nálgumst einn mikilvægasta hlutann í sögu félagsins," sagði Pochettino. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert