Hinn 22 ára gamli knattspyrnumaður Ruben Loftus-Cheek mun íhuga að yfirgefa Chelsea fái hann ekki að spila.
Loftus-Cheek, sem átti góða innkomu fyrir England gegn Túnis, hefur lítið fengið að spila fyrir Chelsea og var lánaður til Crystal Palace á síðasta tímabili þar sem hann spilaði 26 leiki og hjálpaði liðinu að bjarga sér frá falli.
Loftus-Cheek, sem á enn þá þrjú ár eftir af samningi sínum, segir að hann verði að spila sem allra mest eigi hann að halda áfram að bæta sig sem leikmaður: „Það er lykillinn að því hvar ég spila á næsta tímabili. Ég vil spila. Ég vil spila eins mikið og ég get.“
„Ég skil að Chelsea er stór klúbbur og að það er alltaf pressa á þjálfarana að vinna titla. Við sjáum hvað setur. Ég er öruggur með mína hæfileika og ég veit að ég get staðið mig vel hvar svo sem það er.“