Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United á Englandi, er nú að jafna sig eftir heilablóðfall en hann hrósaði Paul Scholes, fyrrverandi miðjumanni liðsins, í hástert á góðgerðarkvöldverði sem haldinn var til heiðurs leikmanninum í gær.
Scholes spilaði allan sinn atvinnumannaferil með Manchester United og vann ensku úrvalsdeildina ellefu sinnum, þá vann hann ensku bikarkeppnina í þrígang og Meistaradeild Evrópu í tvígang.
„Fyrst þegar hann kom til okkar, þá 13 ára gamall, var hann afar lágvaxinn miðað við aldur. Við héldum að þetta myndi há honum á seinni árum hans en annað kom á daginn. Hann blómstraði og allir knattspyrnuáhugamenn vita hvað hann getur í dag. Hann átti ótrúlegan feril og gerði frábæra hluti fyrir Manchester United.“
„Hann var hinn fullkomni leikmaður og sama hversu margir frábærir leikmenn hafa spilað fyrir félagið þá verður Scholes alltaf á meðal þeirra allra bestu. Xavi, Iniesta og Pirlo tala allir um hann sem besta enska leikmanninn frá upphafi og það eru allt menn sem vita hvað þeir syngja,“ sagði Ferguson.