Breskir fjölmiðlar greina frá því að bakvörðurinn Luke Shaw hafi ritað nafn sitt undir nýjan samning við Manchester United.
Nýi samningurinn gildir til fimm ára en samningur hans átti að renna út eftir tímabilið. Shaw kemur til með að hækka verulega í launum en hann er sagður fá 190 þúsund pund á viku en sú upphæð jafngildir um 30 milljónum króna.
Shaw er 23 ára gamall og kom til Manchester United frá Southampton fyrir fjórum árum. Bakvörðurinn varð fyrir alvarlegum hnémeiðslum í leik gegn PSV í Meistaradeildinni í septembermánuði 2015.
Hann var frá keppni í tæpt eitt ár og á tímabili var óljóst hvort hann ætti afturkvæmt út á völlinn á ný. Shaw hefur verið einn besti leikmaður Manchester United á þessu tímabili og vann sér sæti í enska landsliðinu á nýjan leik.