Ítalskir fölmiðlar greina frá því að Manchester United sé á höttunum eftir miðjumanni ítalska liðsins Roma en José Mourinho, stjóri United, vinnur nú í því að styrkja leikmannahóp sinn þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar.
Ítalska blaðið Corriere dello Sport segir frá því að miðjumaðurinn Lorenzo Pellegrini sé í sigtinu hjá Mourinho en hann er 22 ára gamall og er verðmiðinn á honum 27 milljónir punda.
Pellegrini kom til Roma frá ítalska liðinu Sassuolu í fyrra. Hann á baki 9 leiki með ítalska landsliðinu.