Geta ekki fengið neinn frá Liverpool í bráð

Mohamed Salah.
Mohamed Salah. AFP

Barcelona getur ekki keypt leikmann frá Liverpool fyrr en árið 2021. Frá þessu greina spænskir fjölmiðlar.

Þegar Liverpool seldi Brasilíumanninn Philippe Coutinho til Barcelona í janúar á þessu ári fyrir 145 milljónir punda óskaði Liverpool eftir því að ákvæði yrðu sett í samninginn um að Barcelona væri ekki heimilt að kaupa leikmenn frá Liverpool fyrr en árið 2021.

Mohamed Salah hefur verið orðaður við Katalóníuliðið en vegna samning félaganna getur ekki orðið að félagaskiptum hans í bráð nema að Liverpool hafi frumkvæði að því bjóða Börsungum hann til sölu.

Liverpool hefur á síðustu árum selt Barcelona þrjá leikmenn, Javier Mascherano 2010, Luis Suaréz 2014 og Coutinho 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert