Chelsea vill fá framherja Bournemouth

Callum Wilson er búinn að spila mjög vel á leiktíðinni.
Callum Wilson er búinn að spila mjög vel á leiktíðinni. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur áhuga á að fá Callum Wilson, framherja Bournemouth til liðs við sig. Gianfranco Zola, aðstoðarþjálfari Chelsea, staðfesti þetta á fréttamannafundi í dag. 

Wilson er búinn að spila afar vel með Bournemouth á leiktíðinni og skora níu mörk í 18 leikjum. Hann skoraði einnig í sínum fyrsta leik með enska landsliðinu í vináttuleik gegn Bandaríkjunum í síðasta mánuði. 

„Wilson er að standa sig vel og það eru fleiri félög sem eru að fylgjast með honum. Ekki bara Chelsea. Hann er sterkur, hraður og með mikið markanef. Hann er líka sterkur í loftinu," sagði Zola um Wilson í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert