Belgíski landsliðsmaðurinn Mousa Dembélé hefur sagt skilið við Tottenham og er genginn í raðir kínverska liðsins Guangzhou R&F.
Dembélé hefur spilað með Tottenham í sex og hálft ár en hann kom til liðsins frá Fulham árið 2012.
Dembéle, sem er 31 árs gamall, skrifaði undir þriggja ára samning við kínverska liðið sem greiðir Tottenham 11 milljónir punda sem jafngildir 1,7 milljörðum íslenskra króna. Hann lék samtals 248 leiki með Tottenham og á þessu tímabili hefur hann komið við sögu í tíu deildarleikjum með Lundúnaliðinu.