Tottenham með Perisic í sigtinu

Ivan Perisic.
Ivan Perisic. AFP

Tottenham er á höttunum eftir króatíska landsliðsmanninum Ivan Perisic að því er fram kemur í ítölskum fjölmiðlum í dag.

Perisic leikur með Inter á Ítalíu og eru forráðamenn Mílanóliðsins sagðir reiðubúnir að selja leikmanninn í sumar. Verðmiðinn á honum ætti að vera nálægt 30 milljónum punda. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við Inter.

Manchester United var lengi á höttunum eftir Perisic og þá var Arsenal nálægt því að fá Króatann til liðs við sig í janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert