Burnley vann sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta síðan 21. desember er liðið lagði Leicester á heimavelli í dag, 2:1.
Leicester komst yfir á 33. mínútu með marki Harvey Barnes en Chris Wood jafnaði á 56. mínútu. Leicester fékk gott færi til að skora á 68. mínútu en Tom Pope gerði glæsilega í að verja vítaspyrnu frá Jamie Vardy.
Það átti eftir að vera dýrkeypt fyrir Leicester því Ashley Westwood skoraði sigurmark Burnley á 79. mínútu. Leicester hefur tapað tveimur leikjum í röð í deildinni.