Arsenal vann auðveldan útisigur á botnliði Norwich, 4:0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Arsenal fer þar með upp í 7. sætið með 46 stig en er sex stigum á eftir Manchester United og Wolves. Norwich situr sem fyrr á botninum með 21 stig.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.