Michail Antonio, sóknarmaður enska knattspyrnufélagsins West Ham, gerði sér lítið fyrir og skoraði fernu fyrir liðið þegar West Ham heimsótti botnlið Norwich í ensku úrvalsdeildinni á Carrow Road í dag. Með tapinu er ljóst að Norwich er fallið.
West Ham fer með sigrinum upp í sextánda sæti deildarinnar mep 34 stig, 6 stigum frá fallsæti, en Norwich er sem fyrr í botnsæti deildarinnar með 21 stig.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.