Sheffield United gerði sér lítið fyrir og vann 3:0-heimasigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
David McGoldrick kom Sheffield á bragðið á 18. mínútu er hann skoraði af stuttu færi eftir að Kepa Arrizabalaga í marki Chelsea varði boltann beint fyrir fætur hans.
Stundarfjórðungi síðar var staðan orðin 2:0. Skoski framherjinn Olivier McBurnie skallaði þá boltann í netið af stuttu færi eftir fyrirgjöf Enda Stevens og var staðan í leikhléi 2:0, Sheffield United í vil.
Spilamennska Chelsea batnaði lítið í seinni hálfleik og McGoldrick skoraði sitt annað mark á 77. mínútu og gulltryggði hann í leiðinni magnaðan sigur Sheffield United.
Chelsea er áfram í þriðja sætinu með 60 stig, en Leicester og Manchester United geta bæði tekið fram úr Leiceseter með sigrum á morgun og mánudag. Sheffield United er í sjötta sæti með 54 stig.