Chelsea hefur blandað sér í baráttuna um að fá spænska knattspyrnumanninn Sergio Reguilon frá Real Madrid en Everton lagði fram tilboð í bakvörðinn á dögunum. Sky Sports greinir frá.
Reguilon er 23 ára og var valinn besti vinstri bakvörðurinn í spænsku 1. deildinni á síðustu leiktíð er hann var lánsmaður Sevilla.
Hafnaði Sevilla í fjórða sæti deildarinnar og var Reguilon einn besti leikmaður liðsins. Everton vill fá nýjan vinstri bakvörð eftir að Leighton Baines tilkynnti um síðustu helgi að skórnir væru komnir á hilluna.
Real er í fínum málum þegar kemur að leikmönnum í stöðuna þar sem Marcelo og Ferland Mendy eru fyrir hjá félaginu.