Mason Greenwood og Phil Foden, leikmenn enska landsliðsins í knattspyrnu, gerðust sekir um brot á íslenskum sóttvarnareglum á dögunum þegar þeir fengu tvær íslenskar stúlkur í heimsókn til sín á Hótel Sögu á meðan þeir dvöldu hér á landi.
Greenwood og Foden voru báðir í enska landsliðshópnum sem vann 1:0-sigur gegn Íslandi á Laugardalsvelli í Þjóðadeild UEFA fyrr í mánuðinum.
Sky Sports greinir frá því að hvorugur þeirra verði í landsliðshóp Englands sem mætir Wales í vináttuleik og Belgíu og Danmörku í Þjóðadeildinni. Segir Sky að Southgate vilji ekki senda röng skilaboð til leikmanna í hópnum með að velja Foden og Greenwood á nýjan leik.
Harry Maguire, sem var handtekinn á Grikklandi skömmu fyrir leikinn gegn Íslandi, snýr hins vegar aftur í hópinn.