Enska knattspyrnufélagið Manchester City gekk í kvöld frá kaupunum á Rúben Dias, varnarmanni Benfica. Enska félagið greiðir 65 milljónir punda fyrir Dias sem verður fyrir vikið dýrasti leikmaðurinn í sögu Manchester-félagsins.
Nicolás Otamendi mun ganga til liðs við Benfica á móti en Benfica þarf að borga 14 milljónir punda fyrir argentínska miðvörðinn.
Dias er 23 ára gamall portúgalskur miðvörður en hann er uppalinn hjá Benfica og á að baki 90 leiki fyrir félagið í öllum keppnum. Þá á hann að baki 19 landsleiki fyrir Portúgal en hann lék sinn fyrsta landsleik árið 2018.