Wolves unnu frábæran 2:1 útisigur gegn Arsenal á Emirates-vellinum í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Úlfarnir komust yfir á 27. mínútu með marki Pedro Neto. Neto fylgdi þá eftir skalla Leander Dendoncker í þverslána.
Aðeins þremur mínútum síðar jafnaði Gabriel með skalla eftir góða fyrirgjöf Willian.
Á 42. mínútu kom Daniel Podence Úlfunum yfir að nýju. Podence náði frákastinu eftir að skot Neto var varið og kláraði frábærlega.
Engin mörk voru skoruð í síðari hálfleik og tóku Úlfarnir því öll þrjú stigin.
Leikur Arsenal og Wolves var sýndur beint á Síminn Sport.