Seint á tímabilinu 2015/2016 var Tottenham Hotspur í harðri toppbaráttu við Leicester City um enska meistaratitilinn í knattspyrnu.
Sterkur 3:0 sigur á Manchester United hélt liðinu kirfilega í þeirri baráttu þegar sex leikjum var ólokið, þótt Leicester hafi á endanum unnið þekkt kraftaverk með því að tryggja sér titilinn nokkru síðar.
Í þessum leik í apríl 2016 var allt í járnum þar til Dele Alli kom Tottenham yfir á 70. mínútu. Toby Alderweireld tvöfaldaði forystuna á 74. mínútu og Érik Lamela rak smiðshöggið á 76. mínútu. Allir þrír eru enn á mála hjá Tottenham.
Mauricio Pochettino og Louis van Gaal voru báðir á sínu öðru tímabili með lið sín, Tottenham og Manchester United, en sá síðarnefndi var rekinn um sumarið 2016 eftir að hafa ekki náð Meistaradeildarsæti, þótt hann hafi skilað enska bikarnum í hús.
Allt það helsta úr þessum frækna sigri Tottenham má sjá í spilaranum hér að ofan.
Tottenham tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn hefst klukkan 15.30 og verður sýndur í beinni útsendingu á Símanum Sport. Upphitun hefst hálftíma fyrr.