Edinson Cavani skoraði stórkostlegt mark þegar Manchester United fékk Fulham í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Cavani skoraði þá af 40 metra færi þegar hann nánast vippaði boltanum yfir Alphonse Aréola í marki Fulham sem var mjög framarlega í markinu.
Joe Bryan jafnaði hins vegar metin fyrir Fulham á 76. mínútu og 1:1-jafntefli því niðurstaðan.
Leikur Manchester United og Fulham var sýndur beint á Símanum Sport.