Óvinsæli United-maðurinn leggur meira á sig

Antony fagnar marki sínu gegn Liverpool.
Antony fagnar marki sínu gegn Liverpool. AFP/Paul Ellis

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Antony hefur ekki átt góða tíma hjá Manchester United síðan hann kom til félagsins sumarið 2022. 

Var hann keyptur á yfir 85 milljónir punda sumarið 2022 en hann er orðinn varamaður daginn í dag. 

Ásamt því hefur hann verið mjög óvinsæll á meðal stuðningsmanna Manchester United en hann skoraði þó mikilvægt mark í bikarsigri United á Liverpool, 4:3, fyrir landsleikjahlé. 

Enskir miðlar greina nú frá því að hann hefur verið að æfa aukalega í landsleikjahléinu og er staðráðinn í að snúa genginu við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert